Einar K. Guðfinnsson:
Virðulegi forseti. Við undirbúning að þessari lagasetningu skapaðist góð sátt jafnt hjá vinnuveitendum sem launþegum. Markmiðið er að draga úr atvinnuleysi og tryggja markviss og samhæfð vinnubrögð. Það er mat þeirra er gleggst þekkja til, t.d. fulltrúa verkalýðshreyfingarinnar, að það fyrirkomulag sem hér er lagt til nái best því markmiði að stuðla að minna atvinnuleysi. Því segi ég já.