Vinnumarkaðsaðgerðir

Miðvikudaginn 26. febrúar 1997, kl. 18:42:11 (4014)

1997-02-26 18:42:11# 121. lþ. 79.3 fundur 172. mál: #A vinnumarkaðsaðgerðir# frv., KÁ (grein fyrir atkvæði)
[prenta uppsett í dálka] 79. fundur

[18:42]

Kristín Ástgeirsdóttir:

Hæstv. forseti. Með þessari grein er verið að setja á fót nýja ríkisstofnun og samkvæmt mínum útreikningum munu nálægt 120 manns koma bara að stjórnunarstörfum þessarar stofnunar og undirstofnana hennar. Ég spyr, hæstv. forseti: Hvað er orðið um þá sem einu sinni hrópuðu: Báknið burt? Hvar eru þeir nú?

Við kvennalistakonur erum á móti þessu bákni og teljum málaflokkinn betur kominn hjá sveitarfélögunum.