Heimsókn formanns grænlensku landstjórnarinnar

Fimmtudaginn 27. febrúar 1997, kl. 16:05:51 (4072)

1997-02-27 16:05:51# 121. lþ. 81.97 fundur 225#B heimsókn formanns grænlensku landstjórnarinnar#, Forseti GÁ
[prenta uppsett í dálka] 81. fundur

[16:05]

Forseti (Guðni Ágústsson):

Forseti vill vekja athygli hv. alþingismanna á því að formaður grænlensku landstjórnarinnar, Lars Emil Johansen, er staddur á þingpöllum ásamt 1. varaforseta Alþingis, Ragnari Arnalds, og fylgdarliði. Formaður grænlensku landstjórnarinnar er hér í Alþingishúsinu í tengslum við opinbera heimsókn hans hingað til lands í boði forsætisráðherra.

Forseti vill fyrir hönd Alþingis bjóða formann grænlensku landstjórnarinnar velkominn í Alþingishúsið og væntir þess að för hans til Íslands verði til að styrkja enn frekar þau góðu tengsl sem eru milli landa okkar.

Forseti vill biðja hv. þingmenn að votta formanni grænlensku landstjórnarinnar og grænlensku þjóðinni vináttu og virðingu með því að rísa úr sætum. --- [Þingmenn risu úr sætum.]