Túlkaþjónusta fyrir heyrnarlausa utan sjúkrahúsa

Mánudaginn 03. mars 1997, kl. 15:23:26 (4091)

1997-03-03 15:23:26# 121. lþ. 82.1 fundur 220#B túlkaþjónusta fyrir heyrnarlausa utan sjúkrahúsa# (óundirbúin fsp.), félmrh.
[prenta uppsett í dálka] 82. fundur

[15:23]

Félagsmálaráðherra (Páll Pétursson):

Herra forseti. Það er rétt að nú er Framkvæmdasjóður einungis eða næstum einungis notaður til framkvæmda og þar af leiðir að við sækjum ekki peninga í hann til að bregðast við í þessu tilfelli. En við munum, eins og ég sagði áðan, leita leiða til þess að koma til aðstoðar eftir því sem okkur er unnt.