Sala afla á fiskmörkuðum

Mánudaginn 03. mars 1997, kl. 16:16:06 (4117)

1997-03-03 16:16:06# 121. lþ. 82.12 fundur 202. mál: #A sala afla á fiskmörkuðum# þál., sjútvrh. (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 82. fundur

[16:16]

Sjávarútvegsráðherra (Þorsteinn Pálsson) (andsvar):

Herra forseti. Textinn á þessu þskj. er mjög afdráttarlaus eins og hér hefur komið fram. Ég skil hann á þann veg að það sé vilji þeirra sem að þskj. standa að allur afli sé seldur á mörkuðum, þar á meðal afli frystiskipa, þar á meðal uppsjávarafli eins og loðna og síld, grásleppa og kúfiskur, en ég vildi gjarnan fá það staðfest hvort þetta sé ekki alveg örugglega hinn rétti skilningur flutningsmanna á efni þess sem þskj. ber með sér.