Flm. (Jóhanna Sigurðardóttir) (andsvar):
Herra forseti. Ég heyri að hæstv. forsrh. er líka á móti því að gert verði að skyldu að birta nöfn styrktaraðila ef framlag fer yfir ákveðna fjárhæð. Ég tel mjög mikils virði að slíkt sé sett. Það mun eyða ákveðinni tortryggni sem oft er uppi varðandi fjármál stjórnmálaflokkanna og hvernig þeir fá framlög til sinnar starfsemi. Ég sé ekki annað en það ætti að vera útgjaldalaust af hálfu stjórnmálaflokkanna að miða slíkt þak við, eins og hér er lagt til, 300 þús. þegar meira að segja er upplýst af stærsta stjórnmálaflokknum að hann hafi ekki tekið við, ef ég skildi hæstv. forsrh. rétt, framlögum yfir 300 þús. Því ætti að vera útgjaldalaust að setja slíkt þak á og ég held að það mundi eins og ég segi vera til bóta varðandi það að eyða tortryggni sem er uppi um fjármál stjórnmálasamtaka og hvernig þeir afla fjár til þess að reka sína starfsemi.