Athugasemd um útbýtingu þingskjals

Þriðjudaginn 11. mars 1997, kl. 14:16:50 (4261)

1997-03-11 14:16:50# 121. lþ. 87.97 fundur 238#B athugasemd um útbýtingu þingskjals#, Forseti GÁ
[prenta uppsett í dálka] 87. fundur

[14:16]

Forseti (Guðni Ágústsson):

Útbýtt er á fundinum þskj. 730, Áhrif breytinga á ríkisviðskiptabönkunum, fsp., flm. Jóhanna Sigurðardóttir og Guðmundur Árni Stefánsson.

Forseti vill taka fram að fyrirspurn þessari er útbýtt samkvæmt 2. mgr. 49. gr. þingskapa að ósk fyrirspyrjanda, en forseti synjaði fsp. Atkvæðagreiðsla um fsp. fer fram á næsta fundi, á morgun.