Stofnun hlutafélaga um Landsbanka Íslands og Búnaðarbanka Íslands

Þriðjudaginn 11. mars 1997, kl. 16:21:06 (4277)

1997-03-11 16:21:06# 121. lþ. 87.5 fundur 409. mál: #A stofnun hlutafélaga um Landsbanka Íslands og Búnaðarbanka Íslands# frv., viðskrh. (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 87. fundur

[16:21]

Viðskiptaráðherra (Finnur Ingólfsson) (andsvar):

Herra forseti. Það er rétt hjá hv. þm. að ummæli mín um launakjör bankastjóra liggja fyrir í þingtíðindum þannig að upp á þeim er hægt að fletta og það hefði hv. þm. kannski átt að gera áður en hann fór með þau í þessum ræðustól áðan. Það er hins vegar verra með sögusagnirnar, hv. þm. getur ekki enn fundið orðum sínum stað og þarf enn að vera með dylgjur. Það verður verra að fletta upp á þeim.