Stofnun hlutafélaga um Landsbanka Íslands og Búnaðarbanka Íslands

Fimmtudaginn 13. mars 1997, kl. 11:45:21 (4401)

1997-03-13 11:45:21# 121. lþ. 90.2 fundur 409. mál: #A stofnun hlutafélaga um Landsbanka Íslands og Búnaðarbanka Íslands# frv., viðskrh. (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 90. fundur

[11:45]

Viðskiptaráðherra (Finnur Ingólfsson) (andsvar):

Herra forseti. Hv. þm. spurði við umræðuna hvort eitthvað af þessum rannsóknum hefðu farið fram og könnunum við undirbúning málsins sem komu fram á fyrirspurn á þskj. 730 sem lögð var fram af hv. þm. Jóhönnu Sigurðardóttur og Guðmundi Árna Stefánssyni. Það er rétt að mikið af þessu hefur verið kannað. Hér í andsvari treysti ég mér ekki til þess að svara því efnislega en mun síðar við umræðuna leitast eftir að svara þeim spurningum öllum sem fram koma á meðfylgjandi þingskjali. Sé eitthvað sem ekki næst að svara við þessa umræðu þá er ráðuneytið og ég tilbúinn til að láta þingnefndinni í té öll þau gögn sem þar er óskað eftir og vinna að málinu í samvinnu við nefndina á grundvelli þeirra gagna sem óskað er í þessari fyrirspurn.