Kristín Ástgeirsdóttir (andsvar):
Hæstv. forseti. Ég vil nota þetta tækifæri til að þakka hv. þm. Gunnlaugi M. Sigmundssyni fyrir ræðu hans sem mér fannst mjög athyglisverð. Hann er ekki einn um það að skilja ekki hvaða stefna er hér eiginlega á ferð þar sem menn mæla fyrir því einn daginn að breyta tveimur ríkisbönkum í hlutafélagabanka og koma svo næsta dag og stofna nýjan ríkisbanka, að vísu í sérstökum tilgangi. Þetta er afar sérkennilegt og spurning hvort ekki hefði verið rétt að fara aðrar leiðir, annaðhvort þá sem hv. þm. nefndi að þessir sjóðir færu einfaldlega inn í bankana, sem ég hefði talið hina réttu leið, eða hreinlega inn í Byggðastofnun því maður sér ekki annað en að verið sé að búa hér til einhverja nýja byggðastofnun. En það sem mig langaði til að fá að vita vegna þess sem fram kom í ræðu hv. þm., þ.e. að hann skildi ekki hvert menn væru eiginlega að fara með þessu, var hvaða skýringar fengu stjórnarþingmenn? Nú hljóta þessi mál að hafa verið rædd í stjórnarflokkunum. Hvaða skýringar fengu stjórnarþingmenn á þessum aðgerðum því það hljóta allir að sjá að það er eitthvað mjög sérstakt sem liggur hér að baki. Það hlýtur nú að vera nokkuð augljóst mál. En hvaða skýringar fengu þeir?