Frumvarp um Lánasjóð íslenskra námsmanna

Mánudaginn 17. mars 1997, kl. 15:44:45 (4521)

1997-03-17 15:44:45# 121. lþ. 91.1 fundur 250#B frumvarp um Lánasjóð íslenskra námsmanna# (óundirbúin fsp.), BH
[prenta uppsett í dálka] 91. fundur

[15:44]

Bryndís Hlöðversdóttir:

Herra forseti. Ég þakka ráðherranum fyrir svarið en ég lagði fram nokkrar spurningar og tel að þeim hafi ekki öllum verið svarað. Ég vil gjarnan fá að vita hvort í þessum frumvarpsdrögum væru útfærslur á samtímagreiðslum, ég spurði um það. Og í öðru lagi: Hvenær verður frv. lagt fyrir þingið? Getur hæstv. ráðherra gefið þinginu einhverjar frekari upplýsingar um það heldur en nú liggja fyrir?