Umhverfismat fyrir Fljótsdalsvirkjun

Mánudaginn 17. mars 1997, kl. 15:50:38 (4527)

1997-03-17 15:50:38# 121. lþ. 91.1 fundur 252#B umhverfismat fyrir Fljótsdalsvirkjun# (óundirbúin fsp.), ArnbS
[prenta uppsett í dálka] 91. fundur

[15:50]

Arnbjörg Sveinsdóttir:

Hæstv. forseti. Í ályktun sem okkur þingmönnum Austurl. hefur borist varðandi Fljótsdalsvirkjun frá samtökum áhugafólks um verndun hálendis Austurlands kemur fram að fulltrúar Landsvirkjunar hafa lýst því yfir að ekki þurfi að fara fram umhverfismat fyrir Fljótsdalsvirkjun. Ég beini fsp. minni til hæstv. umhvrh.: Er það svo að ekki þurfi að fara fram umhverfismat vegna virkjunar í Fljótsdal?