Alþjóðasamþykkt um starfsfólk með fjölskylduábyrgð

Þriðjudaginn 18. mars 1997, kl. 14:06:46 (4572)

1997-03-18 14:06:46# 121. lþ. 92.7 fundur 199. mál: #A alþjóðasamþykkt um starfsfólk með fjölskylduábyrgð# þál., félmrh. (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 92. fundur

[14:06]

Félagsmálaráðherra (Páll Pétursson) (andsvar):

Herra forseti. Ég er ekkert að biðja um nein sérstök notalegheit frá hv. þm. þó ég hafi orðið sextugur í gær. Ég er prýðilega ern enn þá og þoli sitt af hvoru tagi.

En ég tel eðlilegra að þáltill. um þetta efni sé stjtill. og lít svo á að þetta verkefni sé þess eðlis að það sé eðlilegt að ríkisstjórn standi að því sem slíku.