Alþjóðasamþykkt um starfsfólk með fjölskylduábyrgð

Þriðjudaginn 18. mars 1997, kl. 14:30:27 (4579)

1997-03-18 14:30:27# 121. lþ. 92.7 fundur 199. mál: #A alþjóðasamþykkt um starfsfólk með fjölskylduábyrgð# þál., Flm. RG (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 92. fundur

[14:30]

Flm. (Rannveig Guðmundsdóttir) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka þetta svar og ég hvet ráðherrann til að kalla nú á sinn fund vini sína í verkalýðshreyfingunni og heyra hjá þeim hvort þeir hafa komið með eitthvað af þessu tagi inn í kjarasamningana og ef ekki, að undirbúa tillöguna. Ég þakka fyrir annars ágæta umræðu. (Félmrh.: Á ég ekki líka að tala við vini mína hjá Vinnuveitendasambandinu?)