Jóhanna Sigurðardóttir:
Herra forseti. Ég þakka fyrirspyrjanda þessa fyrirspurn vegna þess að það er ástæða til að ætla að lögregluyfirvöld úti á landsbyggðinni hafi ekki jafna aðstöðu á við lögregluna hér á höfuðborgarsvæðinu að vinna gegn fíkniefnum. Ég vil spyrja hæstv. dómsmrh. hvenær megi vænta niðurstöðu í þeirri vinnu sem boðuð hefur verið, að það verði settar verklagsreglur um óhefðbundnar rannsóknaraðferðir í ávana- og fíkniefnum sem lögreglan hefur ítrekað kallað eftir eins og fram kemur í skýrslu dómsmrh. um hvort æskilegt væri að setja reglur um heimild deildarinnar til að greiða fyrir upplýsingar sem leiða til að upplýst yrðu stærri brot á lögum um ávana- og fíkniefni. Hæstv. dómsmrh. hefur boðað mjög góðar tillögur um úrbætur í ávana- og fíkniefnamálum. Sumar þeirra hafa séð dagsins ljós á þingi en þó vantar töluvert upp á að þær hafi allar skilað sér sem kalla á atbeina löggjafans. En um þetta vil ég sérstaklega spyrja.