Ágúst Einarsson:
Herra forseti. Í svari hæstv. ráðherra við þessari fyrirspurn kom fram að hann treysti sér ekki til að meta hvort verkmenntagreinar væru vanmetnar í námi til kennsluréttinda. Það var ein af spurningunum sem hann var spurður um. Það er svo sem ekkert við því að segja þó hann hafi ekki lagt nákvæmt mat á þann þátt. Hins vegar gat hann um ákveðna endurskipulagningu sem er í gangi innan menntmrn. varðandi kennslumenntun. Hann nefndi sérstaklega háskóla í uppeldisfræðum, mál sem hefur verið unnið að. Hins vegar kom skýrt fram hjá fyrirspyrjanda áðan að menn hafa áhyggjur af að verkmenntun sé ekki gert nægilega hátt undir höfði við endurskoðun á kennaramenntun. Það eina sem ég vil leggja til umræðunnar er að hvetja ráðherra til að standa vörð um verkmenntun. Verkmenntunin er oft dýr í þeim þætti sem hér er verið að ræða. En ég treysti því og skildi orð menntmrh. þannig að í þeirri endurskipulagningu sem hann hefur innleitt varðandi þennan þátt yrði tekið sérstakt tillit til verkmenntagreina og því fagna ég.