Umhverfisráðherra (Guðmundur Bjarnason) (um fundarstjórn):
Hæstv. forseti. Út af því sem fram kom hjá hv. þm. vil ég aðeins segja að ég hef auðvitað hlýtt á þessar umræður. Ég hef ekki verið í salnum allan tímann en ég hef hlýtt á umræðurnar og það sem hér hefur komið fram. Það var sérstaklega beðið um viðveru mína hér við ákveðna ræðu fyrr í dag og ég hlýddi á hana. Ég tel að þar hafi ekki verið beint til mín fyrirspurnum. Það var hins vegar talað með nokkrum gífuryrðum um störf mín í sambandi við ákveðna afgreiðslu mála. Við höfum áður rætt þá afgreiðslu og þá þætti hér í hv. þingi þannig að ég taldi að ég hefði engu við það að bæta sem þar hefur áður komið fram varðandi þann þátt málsins.
Og vegna skýrslunnar sem nú liggur hér fyrir þinginu frá hv. umhvn. sem hv. 4. þm. Austurl. ræddi um áðan þá held ég, hvað varðar meirihlutaálitið a.m.k., að lesa megi það út úr þeirri skýrslu og þeirri niðurstöðu að embættisfærsla umhvrn. og umhvrh. sé ekki með þeim hætti sem hv. þm. lýsti í þeirri ræðu sinni fyrr í dag sem hann bað um að ég hlýddi á. Ég sá ekki ástæðu til þess og taldi að það hvíldi ekki nein slík kvöð eða skylda á mér að taka þátt í umræðunni þar sem ekki hefur verið beint til mín fyrirspurnum heldur fyrst og fremst talað um embættisfærslu á þann hátt sem mér fannst nú varla sæmandi, eins og ,,sóðalega embættisfærslu``, en ég hafði áður gert grein fyrir þeim þáttum mála. Þess vegna var það nú að ég sá ekki sérstaka ástæðu til þess að taka þátt í umræðunni.