Össur Skarphéðinsson (andsvar):
Herra forseti. Mér finnst merkilegt að sjá æsing hæstv. heilbrrh. yfir því einu að ég hef lesið hér upp tölur sem hún hefur lagt fyrir þingið. Á bls. 7 í skýrslu frá henni um úttekt á áhrifum langrar biðar eftir læknisaðgerðum undir kaflaheitinu Bæklunarlækningar, kemur fram að samkvæmt biðlistayfirliti landlæknis voru um 900 manns á biðlista á árinu 1992 og 1993. Þeim fjölgaði síðar í um 1.300 og það kemur fram að eftir þessum nýju aðgerðum, bakspengingunum sem hæstv. heilbrrh. var að tala um hérna áðan og eru sjálfsagt mjög góðar, bíða samt sem áður ekki nema 180 manns þannig að það er alveg ljóst að þarna er um að ræða verulega aukningu undir forustu hennar í heilbrigðismálunum. Það liggur alveg ljóst fyrir, herra forseti.
Í þessari skýrslu ráðherra segir, með leyfi forseta, á bls. 10:
,,Í raun er biðlisti eftir bæklunaraðgerðum sá biðlisti sem mestrar skoðunar þarfnast.``
Og það eru nákvæmlega tölurnar sem honum tengjast sem ég var að lesa upp vegna þess að það kemur fram í skýrslu hennar sjálfrar að það er það sem menn þurfa að huga helst að.
Ég var áðan að lýsa eftir afstöðu hæstv. heilbrrh. til þess hvort það væri ekki nauðsynlegt í ljósi þeirra upplýsinga sem fram koma um að mjög margir sem eru á biðlistunum eru það illa kvaldir af verkjum að þeir þurfa að neyta ávanabindandi lyfja og verða háðir þeim, og hvort ekki sé ástæða til þess að draga enn meira fjármagn sem allra fyrst í þennan málaflokk. Hér segir á bls. 9, með leyfi forseta:
,,Á árinu 1995 var gerð viðhorfskönnun 55 sjúklinga ... Af 52 sjúklingum sem tóku afstöðu til verkja sögðu 12 verkinn vera óþolandi, 31 verkinn mikinn ...``
Herra forseti. Þetta finnst mér vera nægilegt til þess að menn ráðist á biðlistana með endurnýjuðu afli. Það er verið að brjóta mannréttindi á þessu fólki.