Áhrif langrar biðar eftir læknisaðgerðum

Föstudaginn 21. mars 1997, kl. 17:38:08 (4882)

1997-03-21 17:38:08# 121. lþ. 96.8 fundur 102. mál: #A áhrif langrar biðar eftir læknisaðgerðum# beiðni um skýrslu frá heilbrrh., heilbrrh. (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 96. fundur

[17:38]

Heilbrigðisráðherra (Ingibjörg Pálmadóttir) (andsvar):

Virðulegi forseti. Hvort okkar sem er nú líkara Ragnari Reykás, þá langar mig að spyrja hv. þm. hvort hann sé ekki sammála mér um að eftir því sem við höfum betri sérfræðinga og fleiri, þess meiri möguleika höfum við og þess fleiri aðgerðir gerum við og það vekur meiri vonir hjá sjúklingum um árangur og þar af leiðandi eru fleiri sem njóta.