Hjörleifur Guttormsson:
Virðulegur forseti. Það má reikna með því að af minni hálfu séu ekki mjög jákvæðar undirtektir við tillögu sem felur í sér að beygja til hægri á rauðu ljósi eins og efni þessarar tillögu er og ég vil hafa fyrirvara í sambandi við afstöðu til málsins. Ég tel hins vegar að það sé engin goðgá að leggja fram slíka tillögu til athugunar á Alþingi. En ég tel að í máli sem þessu, eins og í öðrum breytingum í sambandi við umferðarmálefni, þá þurfi að gæta sín mjög vel að því er varðar öryggisþáttinn og að ekki séu stigin nein skref í rauninni sem auka á slysahættu. Hún er ærin fyrir. Mér er ekki kunnugt um sérstaka úttekt á þessu máli af hálfu þeirra sem líta á öryggissjónarmið en kannski verður tillagan til þess að á því verði tekið og það verði athugað.
Mér eru alveg ljós rökin hjá hv. flm. Ég býst við að flestir sem aka bifreiðum átti sig á því að það gæti greitt fyrir umferð að heimila slíka breytingu á umferðarljósum en ég tel að ekki megi taka neina áhættu í þessu sambandi.
Akstursljós eða umferðarljós á gatnamótum eru orðin mjög algeng í Reykjavík og nánast að verða regla. Það er alveg ótrúlegt hvað mikið er sett upp af umferðarljósum --- að manni finnst --- og hefur þeim fjölgað mjög mikið. Ég geri ráð fyrir að öryggissjónarmið liggi þar til grundvallar, ég á von á því. Það er fróðlegt að heyra hv. þm. nefna að í hans víðlenda kjördæmi muni ekki vera neitt umferðarljós þannig að menn þurfi að gera sér ferð til höfuðstaðarins til að skoða slík nývirki. Ég hugsa að þetta sé með sama hætti í mínu kjördæmi, Austurlandskjördæmi. Ég man ekki eftir að þar séu slík virki eins og umferðarljós á gatnamótum. Þó kann að vera að mér hafi yfirsést en ég minnist þess ekki hér og nú.
Mér finnst þessi mikla fjölgun umferðarljósa í Reykjavík bera vott um að menn treysti borgurunum afskaplega illa í umferðinni að virða reglurnar um hættu til hægri og taka tillit til umferðar frá hægri. Mér hefur fundist þessi uppsetning á umferðarljósum ganga mjög langt. Það er hins vegar önnur saga en tengist óneitanlega því máli sem hér er rætt hvað mikið er gert af þessu. Þetta er auðvitað mjög til trafala. Þegar umferðin er lítil seinkar þetta mjög umferð og menn eru þá að bíða oft á tómu, ef svo má segja, á gatnamótum eftir ljósaskiptum. Það segir sig nokkuð sjálft.
Ég vil sem sagt ekki vera í þeim kór að hrópa niður hugmynd af þessum toga og að ekki megi athuga hana en ég hef fullan fyrirvara um málið að því er varðar öryggisþáttinn og tel að gæta þurfi vel að honum og vera ráðandi um niðurstöðu í þessu efni.