Tilhögun þingfundar

Miðvikudaginn 02. apríl 1997, kl. 15:23:37 (4897)

1997-04-02 15:23:37# 121. lþ. 97.94 fundur 267#B tilhögun þingfundar#, Forseti ÓE
[prenta uppsett í dálka] 97. fundur

[15:23]

Forseti (Ólafur G. Einarsson):

Forseti vill nefna að næstu tvö mál á dagskránni eru á vettvangi hæstv. sjútvrh. Forseta er ljóst að sjávarútvegsnefndarmenn eru fjarverandi í dag og mun því ekki ljúka umræðunni, en hefja hana um bæði þessi mál. Forseti vonar að um það geti orðið samstaða.