Forseti (Ólafur G. Einarsson):
Vegna gagnrýni tveggja hv. síðustu ræðumanna á að mál þetta skyldi hafa verið tekið fyrir í gær þá vill forseti skýra þeim frá því að tekið var tillit til fjarveru sjávarútvegsnefndarmanna flestra í gær með því að fresta umræðunni og vonar að það komist endanlega til skila. Hins vegar fagnar forseti áhuga sjávarútvegnefndarmanna á að vera viðstaddir umræðuna og vonar að sá áhugi nái til hv. þm. sem sitja í öðrum nefndum þingsins, þ.e. að þeir séu viðstaddir 1. umr. mála hvort sem þar er um að ræða stjfrv. eða frv. þingmanna.