Landbúnaðarráðherra (Guðmundur Bjarnason) (and\-svar):
Hæstv. forseti. Ég vil þakka fyrir umsögn um málið í heild, að þar sé á ferðinni jákvæð breyting sem sé mikilvæg og skipti máli. Varðandi þá hugmynd sem hv. þm. hreyfði hér, að búa á þessu stigi til ferli sem felldi niður gjaldið eða legði gjaldtöku algerlega af til ýmissa félagslegra þátta sem varðaði landbúnaðinn, leggja til að það skref yrði stigið nú, þá er ég auðvitað alltaf tilbúinn til þess að hlusta á allar skynsamlegar tillögur og hugmyndir og skoða þær. Ég tel hins vegar að í frv. eins og það lítur út sé dálítið róttæk breyting á ferðinni og það kerfi og hvernig það gæti þróast þurfi nú kannski einhvern aðdraganda og nokkurn tíma til að sanna sig. Ég sé fyrir mér, eins og ég nefndi áðan, að áframhaldandi breytingar verði á lánakerfinu þannig að það sé þróun sem sé farin af stað, skref sem við erum búin að stíga í þá átt og sú þróun haldi áfram. Ég er því ekki tilbúinn á þessu stigi til að lýsa yfir stuðningi við þessa hugmynd hv. þm. en segi aftur að sjálfsagt er að skoða allar hliðar og sjónarmið sem fram koma og velta þeim fyrir sér þó að ég hyggi að hér sé kannski nokkuð langt gengið að leyfa ekki þessari breytingu sem hér er lögð til að sanna sig fyrst áður en fleiri skref eru stigin.