Happdrætti Dvalarheimilis aldraðra sjómanna

Föstudaginn 04. apríl 1997, kl. 13:03:48 (5022)

1997-04-04 13:03:48# 121. lþ. 99.17 fundur 414. mál: #A happdrætti Dvalarheimilis aldraðra sjómanna# (rekstrarleyfi) frv., Frsm. JónK
[prenta uppsett í dálka] 99. fundur

[13:03]

Frsm. allshn. (Jón Kristjánsson):

Herra forseti. Ég mæli fyrir áliti allshn. um frv. til laga um breyting á lögum um happdrætti Dvalarheimilis aldraðra sjómanna, nr. 16 13. apríl 1973, með síðari breytingum.

Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Þorstein Geirsson ráðuneytisstjóra og Sigurð Ágúst Sigurðsson, framkvæmdastjóra happdrættis Dvalarheimilis aldraðra sjómanna.

Frumvarpið felur í sér að leyfi til reksturs happdrættisins er framlengt um 10 ár, eða til ársloka 2007, en núgildandi leyfi gildir til ársloka 1997.

Nefndin mælir með samþykkt frumvarpsins.

Árni R. Árnason, Ögmundur Jónasson og Guðný Guðbjörnsdóttir voru fjarverandi við afgreiðslu málsins.

Undir nál. rita Sólveig Pétursdóttir, Valgerður Sverrisdóttir, Jóhanna Sigurðardóttir, Hjálmar Jónsson, Jón Kristjánsson og Kristján Pálsson.