Slit á Eignarhaldsfélaginu Brunabótafélag Íslands

Föstudaginn 04. apríl 1997, kl. 16:16:53 (5048)

1997-04-04 16:16:53# 121. lþ. 99.23 fundur 482. mál: #A slit á Eignarhaldsfélaginu Brunabótafélag Íslands# frv., Flm. EOK (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 99. fundur

[16:16]

Flm. (Einar Oddur Kristjánsson) (andsvar):

Herra forseti. Þessi ábending er alveg hárrétt. Ég veit að í forminu er þetta svona. En í framkvæmdinni er það hins vegar þannig að allir líta svo á að sveitarfélögin hafi í reynd ríkisábyrgð. Og ég fullyrði að hið mikla lánstraust og góðu kjör á almennum markaði sem sveitarfélögin almennt og alls staðar njóta skýrist af þessu. Þau hljóta að njóta svona góðra kjara einmitt í ljósi þess að menn líta þannig á að þau hafi ríkisábyrgð.