Beiðnir um skýrslu

Mánudaginn 14. apríl 1997, kl. 15:17:02 (5078)

1997-04-14 15:17:02# 121. lþ. 101.91 fundur 284#B beiðni um skýrslu# (aths. um störf þingsins), Forseti ÓE
[prenta uppsett í dálka] 101. fundur

[15:17]

Forseti (Ólafur G. Einarsson):

Forseti mun ræða við ráðherra um skýrslur sem eru ókomnar. Þær eru allnokkrar. Forseti vekur athygli á því að að sjálfsögðu verður reynt að koma þeim málum sem lögð eru fram innan framlengingarfrestsins, fyrir 4. apríl, í 1. umr. eftir því sem tími vinnst til. Forseti væntir góðs samstarfs við þingflokksformenn um dagskrár þingfunda til þingloka.