Íþróttalög

Þriðjudaginn 15. apríl 1997, kl. 23:54:10 (5248)

1997-04-15 23:54:10# 121. lþ. 102.16 fundur 543. mál: #A íþróttalög# (heildarlög) frv., ÍGP (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 102. fundur

[23:54]

Ísólfur Gylfi Pálmason (andsvar):

Herra forseti. Þarna greinir okkur í raun á vegna þess að ég lít þannig á að Ungmennafélag Íslands sé alls ekki sérsamband innan ÍSÍ. Þetta eru tvö sjálfstæð sambönd og það er fjöldinn allur af íþrótta- og ungmennafélögum sem tilheyra þessum samböndum og þess vegna finnst mér full ástæða til þess, eins og ég sagði áðan, að hafa Ungmennafélag Íslands með í þessari upptalningu, þ.e. þegar talað er um að ÍSÍ komi fram fyrir Íslands hönd þá vanti þar að hafa hitt sambandið, sem er Ungmennafélag Íslands.