Heilbrigðisráðherra (Ingibjörg Pálmadóttir):
Virðulegi forseti. Ég vil í upphafi þakka fyrir þessa umræðu sem hér hefur farið fram. Hún hefur verið ágæt og nauðsynleg. En ég minni á að við erum að tala um lagastoð og reglugerð sem hefur verið óbreytt í 25 ár. Það erum við að ræða um. Og þegar við erum að tala um reglugerðarbreytingu sem gerð var 1995 þá var hún einungis tæknilegs eðlis vegna þeirra skuldbindinga sem við gerðum við Evrópusambandið 1995. Við erum því ekki að tala um neinar breytingar sem hafa orðið á þessu kjörtímabili varðandi framkvæmd þessara laga eða framkvæmd þessara reglugerða. Ég vitnaði áðan í umboðsmann Alþingis sem úrskurðaði í málinu 1982. Það kann vel að vera að við eigum von á nýjum úrskurði frá honum og það er vel.
En það sem mér finnst skipta aðalmáli er að það þarf að endurskoða almannatryggingalöggjöfina í heild sinni. Eins og kom fram hjá hv. þm. Svavari Gestssyni áðan er hún meingölluð að mörgu leyti, hún er allt of flókin og menn sitja nú yfir því að breyta almannatryggingalöggjöfinni og ég vona að við ljúkum ekki þessu kjörtímabili án þess að klára það verkefni. En aðalatriðið er að á þessu kjörtímabili hefur ekkert breyst. Það hefur ekkert breyst síðan lögin voru sett árið 1971 varðandi þetta mál. En ég tek undir það að mér finnst eðlilegt að þetta mál fái umfjöllun og rækilega skoðun og endurtek þakkir mínar til þeirra sem hér hafa kveðið sér hljóðs.
Ég á einnig von á því að innan tíðar sýni ríkisstjórnin þær breytingar sem verða vegna jaðaráhrifa. Og vegna fyrirspurnar sem kom frá Jóhönnu Sigurðardóttur hér áðan um hækkun bóta (Forseti hringir.) þá verður tekið mið af meðalhækkunum sem verða.