Þátttaka Íslands í Alþjóðahvalveiðiráðinu

Fimmtudaginn 17. apríl 1997, kl. 18:12:44 (5385)

1997-04-17 18:12:44# 121. lþ. 105.5 fundur 411. mál: #A þátttaka Íslands í Alþjóðahvalveiðiráðinu# þál., KH (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 105. fundur

[18:12]

Kristín Halldórsdóttir (andsvar):

Herra forseti. Ég vil aðeins minna menn á að það eru svolítið aðrar aðstæður hér en í Noregi eða Japan. Við erum miklu viðkvæmari fyrir þeim áhrifum sem hvalveiðar gætu haft á efnahags- og atvinnulíf í landinu.