Þátttaka Íslands í Alþjóðahvalveiðiráðinu

Fimmtudaginn 17. apríl 1997, kl. 18:13:17 (5386)

1997-04-17 18:13:17# 121. lþ. 105.5 fundur 411. mál: #A þátttaka Íslands í Alþjóðahvalveiðiráðinu# þál., ÁRJ (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 105. fundur

[18:13]

Ásta R. Jóhannesdóttir (andsvar):

Herra forseti. Mig langar einnig til að benda á það í þessu tilliti að þó svo við gerðumst aðilar að Alþjóðahvalveiðiráðinu, þá er ekki þar með sagt að við mundum hefja hvalveiðar, svo það sé á hreinu. Það yrði síðan að taka afstöðu til þess eftir að þetta hefur allt gengið í gegn ef þáltill. verður samþykkt.