Sjávarútvegsráðherra (Þorsteinn Pálsson) (andsvar):
Herra forseti. Það er óþarfi að endurtaka ræðuna um skýrsluna. Ég hef þegar greint frá því nokkrum sinnum hvernig staðið hefur verið að verki í því efni. Skýrslan verður birt þegar umfjöllun um hana er lokið í ríkisstjórn og það verður alveg á næstunni. Ég á ekki von á því að hv. 15. þm. Reykv. né aðrir hrökkvi neitt við þegar þeir lesa skýrsluna eða að hún komi þeim á óvart.