Jón Kristjánsson:
Herra forseti. Það eru örfá atriði sem ég vildi vekja athygli á nú við þessa fyrri umr. um hafnaáætlun. Það hefur komið fram hjá þeim sem talað hafa hér á undan að hafnaáætlun hefur aldrei hlotið samþykki sem ályktun Alþingis. Ég tek undir það að nauðsynlegt er að svo verði og hvet til þess að svo verði gert á þessu þingi og brotið blað í þessu efni. Hins vegar hafa hafnarframkvæmdir um margt nokkra sérstöðu og þær eru ólíkar vegaframkvæmdum að því leyti að þetta eru samstarfsverkefni ríkis og sveitarfélaga. Þarfirnar eru miklar, aðstæður breytilegar, hafnarframkvæmdum er aldrei lokið að fullu. Það verður þróun, þörfin eykst eða hún minnkar og aðstæður eru breytilegar. Það er m.a. vegna þessa sem skuldir hafa myndast við sveitarsjóði, annaðhvort skuldir við öflugar hafnir sem hafa farið á undan í framkvæmdum sínum eða þá þar sem sveitarsjóðir hafa af veikum mætti verið að koma áfram sínum framkvæmdum.
Það hafa orðið gífurlegar breytingar varðandi hafnirnar á allra síðustu árum. Þær eru í því fólgnar að útflutningsvörum er í auknum mæli keyrt á ákveðnar hafnir til flutnings þaðan. Ýmsar hafnir hafa fengið mjög auknar tekjur af þessu meðan tekjurnar dragast saman hjá öðrum. Þær breyttu aðstæður sem skapast vegna þessa þarfnast skoðunar og fram kom í máli hæstv. ráðherra að hann beinir því til samgn. að skoða kostnaðarskiptinguna í þessu sambandi. Ég tek undir það að kostnaðarskiptingin þarf skoðunar við. Vissulega geta þessar breyttu aðstæður haft í för með sér mjög aukin útgjöld og framkvæmdir hjá þeim höfnum sem taka við hinum aukna útflutningi. En hins vegar er það mjög vafasamt að við getum í sama mæli og nú er steypt allar hafnirnar í sama mót hvað varðar kostnaðarskiptinguna.
Reykjavíkurhöfn hefur haft sérstöðu um langt árabil. Hún hefur haft mjög miklar tekjur sem miðstöð inn- og útflutnings í landinu, sérstaklega þó innflutnings, og á þeim forsendum hefur ekki verið um ríkisframlag að ræða til Reykjavíkurhafnar. Hafnarfjarðarhöfn hefur dregist inn í þessa umræðu og er sett á sama bát í þessari áætlun eins og fram hefur komið. Ég held að samgn. verði að fara vandlega yfir þessa kostnaðarskiptingu og eins og ég sagði áður þá er mjög vafasamt að við getum á landsvísu haldið kostnaðarskiptingunni í sama mæli og verið hefur.
Ég ætla ekki að orðlengja um einstakar framkvæmdir í þessu né skiptingu að öðru leyti. Ég tek undir það sem kom fram hjá hv. 3. þm. Vesturl. að full þörf er á því að fara yfir það mjög nákvæmlega hvort ekki væri rétt að gera þá grundvallarbreytingu að gera allsherjarsamgönguáætlun því landflutningar og framkvæmdir í hafnamálum eru tengdari nú heldur en nokkurn tímann fyrr og framkvæmdir í vegakerfinu og framkvæmdir í hafnamálum tengjast nánar en verið hefur. Að öðru leyti ætla ég ekki að orðlengja um þetta að þessu sinni. Ég vil hvetja til þess að farið verði yfir kostnaðarskiptinguna og ég vil hvetja til þess að þessi áætlun fái samþykkt sem þál. frá Alþingi á þessu vori.