Stofnun hlutafélaga um Landsbanka Íslands og Búnaðarbanka Íslands

Þriðjudaginn 22. apríl 1997, kl. 13:46:51 (5584)

1997-04-22 13:46:51# 121. lþ. 109.4 fundur 409. mál: #A stofnun hlutafélaga um Landsbanka Íslands og Búnaðarbanka Íslands# frv., GHH (grein fyrir atkvæði)
[prenta uppsett í dálka] 109. fundur

[13:46]

Geir H. Haarde:

Herra forseti. Sú breyting sem lögð er til með þessu frv. er ekki bara eðlileg og sjálfsögð, hún er líka nauðsynleg. Hlutafélagaformið er löngu tímabært í íslenskum bankaheimi og fjármálaheimi. Þetta frv. er skref í að færa íslenskar fjármálastofnanir, gömlu ríkisbankana, inn í nútímann og ég segi já með glöðu geði.