Stofnun hlutafélaga um Landsbanka Íslands og Búnaðarbanka Íslands

Þriðjudaginn 22. apríl 1997, kl. 13:47:35 (5585)

1997-04-22 13:47:35# 121. lþ. 109.4 fundur 409. mál: #A stofnun hlutafélaga um Landsbanka Íslands og Búnaðarbanka Íslands# frv., GÁS (grein fyrir atkvæði)
[prenta uppsett í dálka] 109. fundur

[13:47]

Guðmundur Árni Stefánsson:

Virðulegi forseti. Þetta frv. er í raun eðlileg afurð helmingaskiptastjórnar Sjálfstfl. og Framsfl. Frv. er vanbúið. Ég ætla enga ábyrgð að taka á því og ég spyr að leikslokum. Menn fara fram með þetta mál undir formerkjum samkeppni og hagræðis. Við skulum líta inn í framtíð og kanna hver reynslan verður, hvort hún verði ekki einmitt þveröfug og leiði til fákeppni og einokunar. Sú gjörð skal vera á ábyrgð þessarar ríkisstjórnar. Því styð ég þetta ekki heldur sit hjá.