Stofnun hlutafélaga um Landsbanka Íslands og Búnaðarbanka Íslands

Þriðjudaginn 22. apríl 1997, kl. 13:52:27 (5589)

1997-04-22 13:52:27# 121. lþ. 109.4 fundur 409. mál: #A stofnun hlutafélaga um Landsbanka Íslands og Búnaðarbanka Íslands# frv., KÁ (grein fyrir atkvæði)
[prenta uppsett í dálka] 109. fundur

[13:52]

Kristín Ástgeirsdóttir:

Hæstv. forseti. Við vinnslu þessa máls í hv. efh.- og viðskn. hef ég komist að þeirri niðurstöðu að sú breyting að breyta Landsbankanum og Búnaðarbanka Íslands í hlutafélög sé bæði eðlileg og skaðlaus. Ég er hins vegar mjög ósátt við þá leið sem farin er að öðru leyti í þessu frv. Ég mun því greiða atkvæði með 1. gr. en sitja hjá við aðrar greinar og styðja einstakar brtt. ef ástæða er til. Ég segi já.