Ágúst Einarsson:
Herra forseti. Þessi brtt. gerir ráð fyrir beinni aðild starfsmanna að nefnd til undirbúnings hlutafjárvæðingunni. Þetta er réttmæt og skynsamleg tillaga starfsmanna Landsbankans og Búnaðarbankans sem stjórnarandstaðan gerir að sinni. Það er ekki nægjanlegt að fara þá leið sem viðskrh. ætlar að gera að starfsmenn fái að fylgjast með þessu nefndarstarfi. Það er brýnt að okkar mati að starfsmönnum sé sýnd sú virðing við þá miklu breytingu sem er að eiga sér stað á félagi þeirra og umhverfi að þeir fái beina aðild að þessari undirbúningsnefnd. Ég styð þess vegna þessa brtt.