Frsm. efh.- og viðskn. (Ágúst Einarsson):
Herra forseti. Ég mæli fyrir nál. frá efh.- og viðskn. á þskj. 990 um frv. til laga um uppgjör á vangoldnum söluskatti, launaskatti, tekjuskatti og eignarskatti.
Þetta frv. hefur þann tilgang að gera þeim sem enn skulda skatta frá árunum fyrir 1990 kleift að gera upp með greiðslu og skuldabréfum. Hér er búin til leið og möguleiki fyrir aðila sem eiga slíkar gamlar syndir og ekki hefur náðst að innheimta að gera hreint fyrir sínum dyrum. Innheimtumenn ríkissjóðs hafa náð inn langmestu af þessum kröfum en það er enn þá nokkuð eftir. Það er talið eðlilegt út frá hagsmunum ríkissjóðs því það er möguleiki að ná einhverju af þessu inn ef lagt er upp með sanngjarna uppgjörsaðferð.
Hér er fyrst og fremst sú efnisbreyting í þessu frv. að dráttarvaxtaútreikningar eru endurmetnir þannig að í stað þess að skuldir hefðu borið um 270% vexti þá fara vextirnir niður í 60% sem kannski þykir nóg á þessum árafjölda en þeir eru þó enn þá langt yfir hækkun verðbólgu á þessum tíma sem er 40%. Hv. þm. sjá að hér er verið að reyna að leggja upp með sanngjarna leið fyrir þessa skuldara að gera hreint fyrir sínum dyrum og losna við að fara gjaldþrotaleið og lenda í öðrum slíkum aðgerðum af hálfu opinberra aðila eins og menn þekkja vel til. Það er ekki vitað hvort þetta muni skila inn í ríkissjóð einhverjum fjármunum. Það er hugsanlegt. En það er líka hugsanlegt að þetti gefi ýmsum einstaklingum tækifæri á að klára sínar gömlu skuldir. Og ég endurtek að þetta eru skattaskuldir frá árunum fyrir 1990. Hér er verið að reyna að draga strik undir. Þetta eru ekki stórar upphæðir sem hér eru á ferðinni en talið var eðlilegt þegar menn fóru að skoða þetta mál í fjmrn. að koma fram með frv. sem opnaði möguleika á því fyrir menn að gera hreint fyrir sínum dyrum í þessum málum.
Nefnin fékk á sinn fund Braga Gunnarsson og Indriða H. Þorláksson frá fjmrn. Félag löggiltra endurskoðenda fór yfir málið og gerði engar athugasemdir við það. Og eftir skoðun og umræðu í nefndinni fannst nefndarmönnum rétt að fara þessa leið eins og lagt var upp með og nefndin leggur samhljóða til að frv. verði samþykkt óbreytt.