Frsm. 2. minni hluta efh.- og viðskn. (Pétur H. Blöndal) (andsvar):
Herra forseti. Hv. þm. Svavar Gestsson beindi til mín nokkrum orðum, sagði mig hafa aðra skoðun við 1. umr. mála en síðan breytt ég um skoðun þegar á liði. Nú er það svo að í nefndum verða breytingar á frv. sem gera það að verkum að maður getur sætt sig við hluti sem maður sætti sig ekki við í byrjun. Einnig er maður upplýstur í umræðum um ýmis rök sem eru með málum þannig að menn geta skipt um skoðun og til þess eru umræðurnar, hv. þm. Hins vegar er það svo með hv. þm. og það undraði mig nokkuð þegar ég kom á þing að hann segir mjög oft ,,við``. Sem dæmi: Á 36. fundi segir hann: ,,Við erum andvíg þessu fyrirkomulagi. Því greiðum við atkvæði gegn þessari tillögu, herra forseti.`` Hann segir svo, með leyfi herra forseta: ,,Við styðjum að sjálfsögðu slíkar breytingar og þessi er í rauninni þannig að samið hefur verið ...`` o.s.frv. Og svo segir hann: ,,Hins vegar vil ég leggja á það áherslu fyrir okkar hönd, þingflokks Alþb. og óháðra, að við teljum ...`` Eru þetta ómálga börn eða eru þetta hópsálir? Ég spyr. Alþingi Íslendinga er samkunda einstaklinga, þingmanna sem fara eftir samvisku sinni, og það getur enginn talað fyrir annars hönd og Sjálfstfl. talar ekki fyrir mína hönd. Ég áskil mér þess vegna rétt til þess að hafa mína skoðun á málum og þá út í gegn. Það ætti sérstaklega að vera keppikefli stjórnarandstöðuþingmanna sem eru að berjast við að koma sínum málum fram að það sé hlustað og fram fari málefnaleg umræða um mál en ekki þannig að þingflokkar ákveðið hvernig menn hugsi. Og þó það trufli hv. þm. að einstakir þingmenn Sjálfstfl. hafi sjálfstæðar skoðanir í málum þá verður hann bara að gjöra svo vel að sætta sig við það.