Fjárfestingarbanki atvinnulífsins hf.

Þriðjudaginn 22. apríl 1997, kl. 19:12:34 (5651)

1997-04-22 19:12:34# 121. lþ. 109.21 fundur 408. mál: #A Fjárfestingarbanki atvinnulífsins hf.# frv., Frsm. 1. minni hluta EOK (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 109. fundur

[19:12]

Frsm. 1. minni hluta efh.- og viðskn. (Einar Oddur Kristjánsson) (andsvar):

Herra forseti. Ég hélt því fram áðan að það væri sögufölsun að halda því fram að íslensku peningakerfi hafi verið stjórnað af svokölluðu helmingaskipti Sjálfstfl. og Framsfl. Það var pólitískt vopnahlé alla þessa öld milli allra stjórnmálaflokka til þess að stýra þessu opinbera peningakerfi, til þess að finna því starfsfrið. Þrátt fyrir 15 mínútna vangaveltur um sögu og sagnfræði hefur hv. þm. Svavar Gestsson ekki fundið einn einasta stafkrók til þess að mótmæla þessu.