Fjárfestingarbanki atvinnulífsins hf.

Miðvikudaginn 23. apríl 1997, kl. 16:06:47 (5680)

1997-04-23 16:06:47# 121. lþ. 111.1 fundur 408. mál: #A Fjárfestingarbanki atvinnulífsins hf.# frv., PHB (grein fyrir atkvæði)
[prenta uppsett í dálka] 111. fundur

[16:06]

Pétur H. Blöndal:

Herra forseti. Ég er á móti stofnun nýs ríkisbanka og ég er á móti auknum umsvifum ríkisins á fjármálamarkaðnum. Með þessu frv. er verr af stað farið heldur en heima setið og lokað á margar leiðir sem annars væru opnar. Því greiði ég atkvæði gegn 1. gr. en mun sitja hjá við aðrar greinar.