Þjóðfáni Íslendinga

Miðvikudaginn 23. apríl 1997, kl. 16:36:59 (5686)

1997-04-23 16:36:59# 121. lþ. 111.15 fundur 494. mál: #A þjóðfáni Íslendinga# (notkun fánans o.fl.) frv., forsrh. (flutningsræða)
[prenta uppsett í dálka] 111. fundur

[16:36]

Forsætisráðherra (Davíð Oddsson):

Herra forseti. Ég mæli fyrir frv. til laga um breyting á lögum nr. 34 17. júní 1944, um þjóðfána Íslendinga. Frv. þetta er samið af nefnd sem skipuð var í samræmi við ályktun Alþingis frá 6. maí 1994 og í áttu sæti Þorvaldur Garðar Kristjánsson, fyrrv. forseti sameinaðs Alþingis, sem jafnframt var skipaður formaður, Andrés Pétursson, upplýsingafulltrúi hjá Útflutningsráði Íslands og tilnefndur af því, Haraldur Blöndal hæstaréttarlögmaður, Magnús Oddsson ferðamálastjóri, tilnefndur af Ferðamálaráði, og hv. þm. Guðmundur Hallvarðsson sem einmitt átti frumkvæðið að flutningi áðurnefndrar þáltill. og mælti fyrir henni hér með eftirminnilegum hætti.

Ég hygg að aflvaki tillögu hans hafi verið sá að hin tiltölulega ströngu verndarákvæði fánalaganna hafi komið í veg fyrir að þjóðfáninn væri með löglegum hætti nýttur til markaðssetningar á íslenskri framleiðslu, en einkum hefur útflytjendum þótt eftirsóknarvert að geta auðkennt vöru sína með upprunatákni af þessu tagi eins og tíðkast víða erlendis. Slíka notkun hafa lögin um þetta þjóðartákn okkar ekki leyft, en það er reyndar allrar athygli vert að þau geyma eftir því sem næst verður komist sýnu strangari verndarákvæði en annars staðar þekkist. Ástæður þess að verndarákvæðin urðu svo vandlega útfærð í fánalögunum hafa ekki fundist í lögskýringargögnum en þeirri alþýðuskýringu hefur verið haldið á lofti að það stafi öðru fremur af því hversu samofið fánamálið varð sjálfstæðisbaráttu þjóðarinnar og sókn hennar til frelsis og fullveldis framan af öldinni. Hvað sem því líður er ljóst að réttarreglur sem skírskota til almennra velsæmisviðhorfa með svo nákvæmlega útfærðum hætti sem verndarákvæði fánalaganna eru dæmi um, hljóta að koma til endurskoðunar að ákveðnum tíma liðnum og eftir atvikum taka breytingum í samræmi við ríkjandi réttarvitund á hverjum tíma. Sú endurskoðun tel ég að hafi um margt verið orðin tímabær og nefni því til vitnis ekki aðeins þá umræðu sem skapaðist um áðurnefnda þáltill. og samþykkt hennar hér á hinu háa Alþingi, heldur einnig þá ásókn sem orðið hefur í að nota fánann í ýmsum tilgangi og ýmis dæmi um meðferð hans, og jafnvel vafasama meðferð, á undanförnum árum.

Þess vegna var það að nefnd þeirri sem skipuð var í þessu skyni var ekki einasta falið að endurskoða verndarákvæði fánalaganna, heldur taldi ég og nauðsynlegt að allt regluverkið um meðferð hans og notkun yrði yfirfarið í heild sinni. Niðurstöður nefndarinnar og tillögur hef ég lagt óbreyttar og í heild sinni fyrir Alþingi þótt ekki teljist þær að öllu leyti löggjafarmálefni. Engu að síður hef ég talið málið vera þess eðlis að rétt væri að hv. alþm. hefðu það allt til glöggvunar og gætu látið í ljósi skoðun sína á því eftir atvikum.

Veigamesta atriðið í frv. þessu er eins og nærri má geta sú breyting sem lögð er til að gerð verði á verndarákvæðum í 12. gr. laganna. Þess er þó fyrst að geta að 12. gr. samanstendur af sex málsgreinum. Lagt er til að fyrstu þrjár þeirra standi óbreyttar. Þar er fyrst um að ræða almennt verndarákvæði í 1. mgr. sem mælir fyrir um að enginn megi óvirða þjóðfánann, hvorki í orði né verki sem síðan er nánar útfært í næstu þremur málsgreinum. Tvær hinar fyrstu þeirra eru einnig óhreyfðar þannig að óheimilt verði eftir sem áður að nota þjóðfánann sem einkamerki einstaklinga, félaga eða stofnana eða sem auðkennismerki á aðgöngumiðum, samskotamerkjum eða öðru þess háttar. Jafnframt skal stjórnmálaflokkum áfram vera óheimilt að nota þjóðfánann í áróðursskyni við kosningaundirbúning eða kosningar.

Að gildandi lögum er alls óheimilt að nota fánann í firmamerki, vörumerki eða á söluvarning, umbúðir um eða auglýsingu á vörum. Þar er komið að því bannákvæði sem í 8. gr. frv. er lagt til að aflétt verði um annað en firmamerki á þann hátt að slík notkun verði heimil að uppfylltum ákveðnum skilyrðum sem ákveðin verða með reglugerð. Þessi skilyrði eru kynnt í 19. gr. reglugerðardraga sem birt eru sem fskj. II með frv. og gera ráð fyrir tilteknum gæðakröfum til þeirrar starfsemi er í hlut á. Með þessu móti er leitast við að samræma og tryggja eins og kostur er að notkun fánans til markaðssetningar vöru og þjónustu skerði í engu þá helgi og virðingu sem fánanum ber.

Skilyrði þessi gera ráð fyrir að umsækjandi, sem leitar eftir að öðlast leyfi til að nota fánann í umræddu skyni, hagi rekstri sínum, framleiðslu eða þjónustu samkvæmt tilteknum íslenskum stöðlum um gæðastjórnun eða stjórnun umhverfisáhrifa. Hér er ekki átt við gæðastaðla eða staðla tiltekinnar vöru eða þjónustu heldur gæðastjórnunarstaðla, gæðakerfi eða umhverfisstjórn.

Gæðastjórnun felur í sér að stjórnendur fyrirtækja hafi vinnubrögð, starfsvenjur og stjórnunaraðferðir sem marka og framfylgja þeirri stefnu að tryggja gæði vöru og þjónustu.

Stjórnun umhverfisáhrifa felur í sér að gætt sé umhverfisverndar og reksturinn sé svo vistvænn sem verða má. Með þessu móti stuðlar heimildin til notkunar fánans að bættri gæða- og umhverfisstjórnun. Þegar á allt er litið hljóta þó gæði vöru og þjónustu jafnan að vera traustasta markaðssetningin. Með þetta að markmiði hlýtur það að vera af hinu góða að fáninn sé notaður í þessu skyni þegar þess er jafnframt gætt að honum sé engin óvirðing gerð þar sem hann er ekki tengdur því sem enginn sómi er að.

Í lok umfjöllunar um þetta nýmæli vil ég aðeins geta þess að ekki þótti fært að heimila notkun fánans í firmamerkjum í ljósi þess hve rekstur fyrirtækja getur verið margbreytilegur og breyst frá einum tíma til annars. Sum rekstrarsvið fyrirtækja kunna þannig að uppfylla þau skilyrði sem áður eru rakin meðan önnur gera það ekki og á sama hátt getur átt við um stjórnun þeirra til lengri tíma.

Aðrar breytingar á 5. og 6. mgr. 12. gr. laganna leiða af þessari breytingu og hafa engar efnisbreytingar í för með sér. Við 12. gr. er loks skeytt nýrri málsgrein sem tekin er úr samkeppnislögum um bann við notkun þjóðfánans á vörur af erlendum uppruna af augljósum ástæðum. Þetta ákvæði var óbreytt tekið í samkeppnislög úr eldri lögum um verðlag, samkeppnishömlur og óréttmæta viðskiptahætti en rétt þykir að flytja það í fánalögin til að safna þar á einn stað öllum réttarreglum um þjóðfánann.

Að öðru leyti eru aðeins lagðar til óverulegar breytingar á lögunum sjálfum. Mál er varða þjóðfánann voru, eins og önnur þjóðleg málefni, flutt til forsrn. með gildistöku laga um stjórnarráð Íslands og reglugerð um sama hinn 1. janúar 1970 og leiða nokkrar breytingar lagatextans af því.

Þá er lagt til að úrelt grein um fána hafnsögumanns falli brott sökun notkunarleysis en óbreytt ákvæði um póst- og símafána og tollfána flutt í þá grein til að greinatalan haldi sér.

Vegna póst- og símafánans vil ég þó beina því til nefndarinnar sem frv. þetta fær til meðferðar að það ákvæði þarfnast frekari breytinga við í ljósi þeirrar breytingar sem varð á rekstrarformi Póst- og símamálastofnunar um sl. áramót. Skv. 1. mgr. 2. gr. fánalaganna er notkun tjúgufánans einskorðuð við opinberar stofnanir og öðru nafni nefndur ríkisfáninn.

Eftir að Póst- og símamálastofnun var færð úr opinberu í einkaréttarlegt rekstrarumhverfi á ekki við að félagið sem tóku við starfsemi hennar notist við ríkisfánann enda þótt til greina geti komið að merkt starfsemi verði áfram við lýði í hinum almenna fána.

Ekki er ráðgert að lögin taki öðrum breytingum en samhliða frv. þessu eru hins vegar, eins og áður segir, kynntar í fylgiskjölum tillögur að breytingum á stjórnvaldsfyrirmælum um þjóðfánann. Annars vegar er lagt til að safnað verði og sameinað í eina reglugerð ýmsum reglum og venjum sem skapast hafa um meðferð og notkun fánans og hins vegar er lagt til að gefin verði út ný auglýsing um liti þjóðfánans í öðrum litastiga en nú gildir. Er það m.a. nauðsynlegt í ljósi þess að gildandi auglýsing skilgreinir fánalitina aðeins í litastiga er varði textíl- eða tauliti, þ.e. fánar til flöggunar, en af þeirri rýmkun sem lagt er til að verndarákvæði fánalaganna taki hlýtur óhjákvæmilega að leiða að bjóða verður upp á nánar útfærðar skilgreiningar fyrir prent- og skjáliti jafnframt. Geymi sú tillaga sem hér fylgir í fskj. I slíkar skilgreiningar sem útfærðar hafa verið í samráði við úrval sérfræðinga á þessu sviði, þar á meðal frá Iðntæknistofnun, út frá þeim heimildum sem varðveittar eru um tillögur fánanefndarinnar frá 1944 og vilja löggjafans þegar fánalögin voru samþykkt það ár.

Herra forseti. Ég ætla ekki að hafa öllu fleiri orð um þetta mál heldur árétta aðeins það meginmarkmið þess að færa út í frumvarpsbúning þann vilja Alþingis, sem birtist í ályktun þess frá 6. maí 1994, að auka frjálsræði um notkun fánans í þágu eflingar og framdráttar atvinnulífi og efnahag landsmanna án þess þó að skerða í nokkru þýðingu hans sem tákns og ímyndar þjóðarvitundar og fullveldis. Þetta hygg ég að hafi tekist í þessu frv. og leyfi mér því, herra forseti, að leggja til að málinu verði að lokinni þessari umræðu vísað til 2. umr. og hv. allshn.