Tryggingasjóður sjálfstætt starfandi einstaklinga

Föstudaginn 02. maí 1997, kl. 13:21:07 (5725)

1997-05-02 13:21:07# 121. lþ. 115.1 fundur 237. mál: #A Tryggingasjóður sjálfstætt starfandi einstaklinga# frv., Frsm. minni hluta BH (flutningsræða)
[prenta uppsett í dálka] 115. fundur

[13:21]

Frsm. minni hluta félmn. (Bryndís Hlöðversdóttir):

Herra forseti. Ég mæli fyrir nál. minni hluta félmn. um Tryggingasjóð einyrkja á þskj. 833, en minni hluta skipa þingmennirnir Bryndís Hlöðversdóttir, Kristín Ástgeirsdóttir og Rannveig Guðmundsdóttir.

Eins og rakið var í áliti meiri hlutans hefur félmn. fjallað um málið og fengið fjölda manna á sinn fund af því tilefni auk þess sem fjöldi umsagna hefur borist um frv.

Minni hlutinn telur það löngu tímabært að tekið sé á málefnum sjálfstætt starfandi einstaklinga hvað varðar rétt til bóta í atvinnuleysi. Á síðari árum hefur þeim fjölgað stórlega sem hefur verið gert að gerast verktakar og skilgreina sjálfa sig sem sjálfstætt starfandi þótt í raun sé um hefðbundið ráðningarsamband að ræða, en þessu formi ráðningar hefur verið gefið nafnið gerviverktaki. Þá hefur það allt frá því að sjálfstætt starfandi fengu fyrst almennan rétt til atvinnuleysisbóta árið 1993 verið vandamál innan Atvinnuleysistryggingasjóðs hvernig skuli fara með skilgreiningar á því hvenær sjálfstætt starfandi einstaklingar eru atvinnulausir og hafa skilyrðin þótt nokkuð ströng a.m.k. af hálfu sjálfstætt starfandi einstaklinga. Minni hlutinn gerir því ekki athugasemdir við það að málefni þessara hópa séu tekin sérstaklega fyrir, en vegna forsögu málsins, slælegs undirbúnings í félagsmálaráðuneytinu og ófaglegra vinnubragða við gerð frumvarpsins getur minni hlutinn ekki stutt málið eins og það liggur fyrir nú. Ástæður þess munu verða raktar nánar hér á eftir.

Eins og fram kemur í greinargerð með frumvarpinu er forsaga þess að mál þetta kemur fyrir Alþingi sú að fulltrúar þriggja hópa sjálfstætt starfandi, bænda, vörubílstjóra og smábátaeiganda, mótmæltu þeim reglum sem þessir hópar bjuggu við varðandi atvinnuleysisbætur og komu þeir á fund félagsmálaráðherra og óskuðu eftir að málið yrði tekið sérstaklega upp í ráðuneytinu. Í kjölfarið á því skipaði ráðherra nefnd til þess að kanna réttindi og skyldur sjálfstætt starfandi einstaklinga gagnvart atvinnuleysisbótakerfinu og gera tillögur til ráðherra um framtíðarskipan þeirra mála. Í hana voru skipaðir fulltrúar frá Bændasamtökum Íslands, Landssambandi vörubifreiðastjóra, Landssambandi smábátaeiganda, fjármálaráðuneyti og vinnumálaskrifstofu félagsmálaráðuneytisins. Formaður nefndarinnar var Árni Gunnarsson, aðstoðarmaður félagsmálaráðherra.

Minni hlutinn telur það algerlega óviðunandi vinnubrögð af hálfu ráðuneytisins að ganga þannig umhugsunarlaust erinda þessara þriggja hópa á meðan fjöldi manna er í nákvæmlega sömu aðstöðu gagnvart atvinnuleysisbótakerfinu. Samkvæmt upplýsingum sem fram koma í áfangaskýrslu nefndarinnar er það ljóst að í hópi einyrkja eru um 20 þúsund manns, en af þeim eru aðeins um 5.500 innan þeirra þriggja hópa sem frumvarpið náði upphaflega til.

Við þetta vill minni hlutinn gera athugasemdir og telur þetta ekki eðlileg vinnubrögð. Það eru ekki rök í sjálfu sér að okkar mati að sérstaklega hafi verið farið í þá vinnu gagnvart þessum þremur hópum eingöngu vegna þess að þeir hafi komið og óskað eftir breytingu. Það hefði að okkar mati átt að kalla á það að réttarstaða allra sjálfstætt starfandi væri almennilega skoðuð og skilgreind.

Eins og fram hefur komið í áliti meiri hlutans, komu fulltrúar þeirra fjölmörgu sem átti að skilja eftir úti í kuldanum, eins og frv. var lagt fram upprunalega, að máli við félagsmálanefnd og einnig félagsmálaráðherra og sá ráðuneytið ástæðu til að opna sjóðinn fyrir öðrum sjálfstætt starfandi. Leggur meiri hlutinn fram breytingartillögur þess efnis, eins og rakið var áðan í framsögu meiri hlutans. Þótt þar sé stigið skref í rétta átt telur minni hlutinn að ríkisstjórnin hefði átt að draga frumvarpið til baka og leggja fram nýjar tillögur þar sem allir hópar sjálfstætt starfandi njóta jafnræðis gagnvart þeim lögum sem verið er að setja. Við teljum það vera grundvallaratriði því eins og frumvarpið lítur út nú njóta þeir þrír hópar, sem áður voru nefndir, forgangs en aðrir hópar eru allir settir undir sama hatt. Það má auðveldlega sjá þegar farið er í gegnum breytingartillögur meiri hlutans að þar er alltaf talað um þessa þrjá hópa, bændur, smábátaeigendur og vörubílstjóra og síðan aðra sjálfstætt starfandi. Þeim er ekki tryggð staða jafnfætis þessum þremur hópum sem eru aðeins 5.500 af þeim 20 þúsund sem falla þarna undir. Við í minni hlutanum höfum ekki heyrt sannfærandi rök fyrir því af hverju þeir þrír hópar eiga að njóta sérstöðu í þessari löggjöf umfram t.d. arkitekta eða þýðendur svo að dæmi séu tekin sem eru stórir hópar líka.

Undirbúningstími frumvarpsins í ráðuneytinu áður en það kemur fyrir þingið er í raun með ólíkindum og gagnrýnir minni hlutinn hroðvirknisleg vinnubrögð af hálfu ráðuneytisins í þeim efnum. Má þar t.d. benda á að nefndin sem undirbjó frumvarpið var ekki aðeins skipuð þröngum hópi manna, heldur var hún með eindæmum fljót að komast að niðurstöðu. Nefndin var skipuð 8. október 1996 og skilaði hún áfangaskýrslu til ráðherra mánuði síðar eða í nóvember. Niðurstöðurnar í þeirri skýrslu eru í stórum dráttum þær sömu og frumvarpið gerir ráð fyrir eins og það kom fyrir í sinni upprunalegu mynd þannig að við teljum að töluverð mikil vinna hafi verið eftir og yfirlega yfir frumvarpinu þegar það kom fyrir félmn. Alþingis, enda lokaði undirbúningsnefndin á þann möguleika að hleypa öðrum en fulltrúum hópanna þriggja að málinu. Rökin fyrir þeirri ákvörðun að aðeins þrír hópar fái aðgang að nefndarstarfinu eru þau að aðrir hópar hafi ekki óskað eftir breytingum og að umfangsmikið og tímafrekt yrði að kynna slíkt fyrirkomulag fyrir öllum sjálfstætt starfandi, auk þess sem búast mætti við því að erfitt yrði að ná samstöðu þegar margir kæmu að málinu. Þarna er vitnað nokkurn veginn orðrétt í áfangaskýrsluna á bls. 11. Þetta telur minni hlutinn ekki vera mjög sannfærandi röksemdafærslu. Við viljum ítreka það að við teljum það vera skyldu ráðuneytisins sem á annað borð er að taka upp málefni einyrkja, sem er mjög gott mál í sjálfu sér, að þeim sé tryggt jafnræði gagnvart lögunum.

Minni hlutinn lagði á það ríka áherslu í félagsmálanefnd að skoða þyrfti betur annað fyrirkomulag en það sem lagt er til í frumvarpinu. Ýmsir hafa bent nefndinni á að þeir vildu gjarnan eiga val um hvort þeir greiddu tryggingagjaldið þannig að aðeins þeir sem greiddu gætu notið réttar. Bandalag íslenskra listamanna hefur m.a. bent á þetta, ekki síst á þeim rökum að margir innan þeirra samtaka nýti sér aldrei rétt sinn til atvinnuleysisbóta af ýmsum ástæðum. Má nefna sem dæmi rithöfunda, en eðli málsins samkvæmt er erfitt að skilgreina hvenær þeir eru atvinnulausir auk þess sem þeir mundu seint lýsa slíku yfir og voru færð fyrir því nokkuð sannfærandi rök að okkar mati. Valkvætt kerfi á þessum nótum var að mati minni hlutans ekki skoðað nægilega vel í félagsmálanefnd. Við erum ekki að segja að það hefði orðið rétta lendingin en við töldum koma fram sterk rök, alla vega fyrir því að það yrði skoðað mun betur en gert var í nefndinni, en það virtist sem ekki væri vilji fyrir því að skoða það yfir höfuð auk þess sem lögð var ofuráhersla á að hraða afgreiðslu málsins af hálfu meiri hlutans.

Þá gerum við athugasemdir við það í nefndaráliti að ekki liggi fyrir hvernig ráðuneytið hyggst útfæra reglurnar um sjóðinn, t.d. hve margar deildir eigi að vera í honum, hverjir eigi að veljast saman í deildir o.s.frv., en slíkt hefði þurft að undirbúa mun betur af ráðuneytisins hálfu áður en lagafrumvarpið er afgreitt úr þinginu því eins og frsm. meiri hlutans kom inn á áðan, þá er hér um flókið fyrirbæri að ræða þar sem sjálfstætt starfandi koma úr ýmsum áttum og um er að ræða mjög mismunandi hagsmuni og mismunandi stöðu þessara hópa sem raunin er og það getur reynst mjög flókið og erfitt að koma saman einhverjum skynsamlegum reglum um þetta mál.

Minni hlutinn getur m.a. af þeim ástæðum sem hér eru raktar ekki stutt frumvarpið eins og það liggur fyrir nú og stendur ekki heldur að breytingartillögum meiri hlutans. Áskilur minni hlutinn sér rétt til að styðja eða greiða atkvæði gegn einstökum breytingartillögum eða leggja fram sjálfstæðar breytingartillögur við afgreiðslu málsins ef ástæða þykir til.

Undir þetta álit rita Bryndís Hlöðversdóttir, Kristín Ástgeirsdóttir og Rannveig Guðmundsdóttir.