Sjávarútvegsráðherra (Þorsteinn Pálsson):
Herra forseti. Það hefur alltaf legið fyrir frá því að ákvörðun var tekin um það hvernig yrði staðið að síldveiðunum, að það væri ákvörðun sem gilti fyrir þessa vertíð og ekkert lægi fyrir um það hvernig staðið yrði að ákvörðun á næsta ári. Ég get ekki fullyrt um það hér og nú og ég get heldur ekki stýrt því hvaða ímyndanir eru í hugum þeirra útgerðarmanna sem hér eiga hlut að máli. En það hefur legið alveg kristaltært fyrir frá því að þessi ákvörun var tekin að hún gilti fyrir þessa vertið en ekki þá næstu og enn sem komið er liggur ekkert fyrir um það hvernig þá verður staðið að málum. Ég get ekki gefið um það neina yfirlýsingu, hvorki af eða á, vegna þess að um það á eftir að taka ákvörðun.