Nýsköpunarsjóður atvinnulífsins

Mánudaginn 05. maí 1997, kl. 16:07:53 (5803)

1997-05-05 16:07:53# 121. lþ. 116.2 fundur 407. mál: #A Nýsköpunarsjóður atvinnulífsins# frv., PHB (grein fyrir atkvæði)
[prenta uppsett í dálka] 116. fundur

[16:07]

Pétur H. Blöndal:

Herra forseti. Ég hef enga trú á opinberum sjóðum til að efla atvinnulífið og tel að heldur ætti að stuðla að bættu umhverfi fyrirtækja. Reynsla okkar Íslendinga af slíkum sjóðum er ekki góð og síst af öllu í nýsköpun og frumkvæði. Því mun ég sitja hjá við atkvæðagreiðsluna nema við atkvæðagreiðslu um brtt. við 7. gr. b-lið frá meiri hluta efh.- og viðskn. sem ég tel vera athygliverða.