Guðmundur Árni Stefánsson:
Virðulegi forseti. Ég vil eingöngu láta það koma skýrt fram að ég styð þá meginhugmynd sem að baki þessu frv. liggur um Nýsköpunarsjóð atvinnulífsins. En á hinn bóginn verður ekki við það unað að útfærsla málsins öll er slík að ekki verður við búið þannig að ég get ekki stutt málið í heild. Ég vil láta það koma skýrt fram að eins og sjóðurinn er skilgreindur í 2. og 3. gr., þ.e. meginhugmyndin, þá er það fullkomlega aðgengilegt fyrir mig.
Það eru mér því mikil vonbrigði að menn skuli hafa misst þetta tækifæri úr höndum sér sem hér um ræðir og útfært málið illa, m.a. með hliðsjón af stjórnarfyrirkomulagi, með ýmsum öðrum þáttum er varða áhættulánsfjármagn og fleiri þáttum sem í frv. eru og það eru vonbrigði. En vonandi hefur Alþingi tækifæri til þó síðar verði að lagfæra mestu og helstu meinbugi þessa máls. En ég styð þá meginhugmynd sem að baki liggur.