Nýsköpunarsjóður atvinnulífsins

Mánudaginn 05. maí 1997, kl. 16:18:46 (5807)

1997-05-05 16:18:46# 121. lþ. 116.2 fundur 407. mál: #A Nýsköpunarsjóður atvinnulífsins# frv., KHG (grein fyrir atkvæði)
[prenta uppsett í dálka] 116. fundur

[16:18]

Kristinn H. Gunnarsson:

Herra forseti. Í 2. og 3. gr. þessa frv. er tilgangi sjóðsins, hlutverki hans og heimildum til lána og ábyrgða ágætlega gerð skil. Hins vegar er því miður í þessari málsgrein mjög svo þrengt að möguleikum sjóðsins til að uppfylla hlutverk sitt eins og það hefur áður verið skilgreint og svo mjög að varla er hægt að tala um að hann geti gegnt því hlutverki sem honum er ætlað og því sit ég hjá við afgreiðslu á þessari málsgrein.