Almenningsbókasöfn

Mánudaginn 05. maí 1997, kl. 17:37:22 (5842)

1997-05-05 17:37:22# 121. lþ. 116.5 fundur 238. mál: #A almenningsbókasöfn# (heildarlög) frv., SJóh (grein fyrir atkvæði)
[prenta uppsett í dálka] 116. fundur

[17:37]

Sigríður Jóhannesdóttir:

Hæstv. forseti. Með þessu ákvæði er gert ráð fyrir að hæstv. menntmrh. skipi ráðgjafarnefnd um málefni almenningsbókasafna en ekki er skilgreint nánar hvernig þessari ráðgjöf verði framfylgt. Mér finnst að þarna vanti nánari ákvæði um fyrirkomulag og greiði því ekki atkvæði um þessa grein.