Helgidagafriður

Mánudaginn 05. maí 1997, kl. 18:09:51 (5855)

1997-05-05 18:09:51# 121. lþ. 116.9 fundur 31. mál: #A helgidagafriður# (heildarlög) frv., VS (grein fyrir atkvæði)
[prenta uppsett í dálka] 116. fundur

[18:09]

Valgerður Sverrisdóttir:

Hæstv. forseti. Ég vil lýsa ánægju með að þetta frv. er komið til lokaafgreiðslu. Ég tel þetta vera mjög góð lög, nútímaleg, en samt gætt ákveðinnar íhaldssemi og þrátt fyrir það að sú brtt. sem ég studdi ekki hafi verið samþykkt hér með miklum meiri hluta, þá styð ég að sjálfsögðu frv. núna við lokaafgreiðslu þess.