Tilkynning um dagskrá

Þriðjudaginn 06. maí 1997, kl. 13:33:39 (5873)

1997-05-06 13:33:39# 121. lþ. 117.91 fundur 314#B tilkynning um dagskrá#, Forseti RA
[prenta uppsett í dálka] 117. fundur

[13:33]

Forseti (Ragnar Arnalds):

Um kl. 13.45 í dag fer fram umræða utan dagskrár um undirboð í vikurútflutningi. Málshefjandi er Árni Johnsen. Hæstv. iðnrh. verður til andsvara. Umræðan fer fram skv. 50. gr. þingskapa og er hálftíma umræða.

Einnig vill forseti láta þess getið að að lokinni þessari utandagskrárumræðu fer fram umræða utan dagskrár um rekstur Áburðarverksmiðjunnar. Málshefjandi er Svavar Gestsson. Hæstv. landbrh. verður til andsvara. Umræðan fer fram skv. 50. gr. þingskapa og er einnig hálftíma umræða.