Samvinnufélög

Þriðjudaginn 06. maí 1997, kl. 15:32:23 (5898)

1997-05-06 15:32:23# 121. lþ. 117.8 fundur 506. mál: #A samvinnufélög# (samvinnufélagaskrá) frv., Frsm. VE (flutningsræða)
[prenta uppsett í dálka] 117. fundur

[15:32]

Frsm. efh.- og viðskn. (Vilhjálmur Egilsson):

Hæstv. forseti. Ég mæli fyrir nefndaráliti um frv. til laga um breytingu á lögum nr. 22/1991, um samvinnufélög, með síðari breytingum.

Hæstv. forseti. Sú tillaga sem hér er til umfjöllunar er sama eðlis og þær tillögur sem lagðar eru til af hálfu nefndarinnar um breytingar á frv. um hlutafélög og einkahlutafélög og tel ég því ekki ástæðu til að gera frekari grein fyrir því.